|
 |
|
Fókus
ljósmyndafélag |
|
| |
| |
|
Viltu
vera með í skemmtilegum félagsskap áhugaljósmyndara? |
|
|
| |
Fókus, félag
áhugaljósmyndara á höfuðborgarsvæðinu, opið öllum áhugamönnum um ljósmyndun.
Félagið telur nú um 60 félagsmenn. Starf félagsins felst helst
í að virkja ljósmyndun sem áhugamál hjá fólki. Farið er í
ljósmyndaferðir, haldnar ljósmyndakeppnir, fagmenn halda
fyrirlestra á fundum félagsins, haldnar eru kynningar o.fl. Fundir
eru haldnir á tveggja vikna fresti yfir vetrarmánuðina en
sjaldnar á sumrin.
|
Þá hittast félagar, ræða saman um
ljósmyndun og bera saman bækur sínar. Á fundum sýna félagsmenn
bæði slides og stafrænar myndir.
|
Félagsmenn fá afsláttarkort /
félagsskírteini. Í boði er afsláttur frá ýmsum fyrirtækjum sem
selja ljósmyndavörur auk framköllunar. Afsláttur er mismunandi, allt
frá 7 – 40 %
|
Árgjald fyrir árið 2006 er krónur
4.000
|
Vefsíða félagsins er:
www.fokusfelag.is
Þar
er að finna allar upplýsingar um Fókus og hægt að skrá sig í
félagið.
|
|
|