Um vefinn

Hugmynd að þessari vefsíðu kom upp sumarið 2001 og var opnuð þann 4. ágúst 2001. Hún var hugsuð fyrir þá fjölmörgu sem fást við þá iðju að taka ljósmyndir. Mér fannst vanta einhvern miðpunkt, þar sem fólk gæti "komið saman" og sýnt hvort öðru myndir, spjallað saman og miðlað af reynslu sinni. Þetta er allt hægt á tíma tækninnar á einfaldan og fljótlegan hátt. Fólk getur með þessum vef sent inn myndir og fengið gagnrýni á þær og er það vinsælt af þeim sem á síðuna koma að ræða um myndbygginguna og eru ekki allir sammála þar. Auk þess getur fólk "spjallað"saman um ljósmyndunina og miðlað jafvel af reynslu sinni.

Hugmyndin að nafninu kom aðeins örfáum dögum áður en það var skráð hjá viðkomandi þjónustuaðila. Nokkur önnur nöfn voru inn í myndinni, þ.á.m. ljósmyndun og amatör, en þess nöfn voru heldur stirð og var fallið fljótt frá því að nota þau. Ljósmyndari er starfsheiti og iðngrein, en mörgum finnst það vera samheiti yfir atvinnumenn og áhugaljósmyndara, en mikið er af hæfileikaríku fólki sem fæst við ljósmyndun sem áhugamál  og hefur  náð nokkuð langt. Mér fannst alveg tilvalið að hafa nafnið á þessari síðu ljosmyndari.is sem samheiti yfir allt áhugafólk um ljósmyndun,  leikna sem lærða.ljosmyndari.is er í stöðugri vinnslu og er uppfærð reglulega.  Margir áhugaljósmyndarar skoða erlendar ljósmyndasíður, en vilja frekar sjá íslenskar með svipuðu efni. ljosmyndari.is er gagnvirk vefsíða, þ.e.a.s. almenningur gefst kostur á því senda inn myndir til að fá umsögn um þær og hver sem er getur gagnrýnt þær.

Tilgangur með ljosmyndari.is er að miðla ýmsum fróðleik um ljósmyndunina, birta greinar um allt er viðkemur ljósmyndun, gagnrýni á myndir, ljósmyndasamkeppnir, ljósmyndasýningar, skoðanakannanir, upplýsingar um starfandi ljósmyndaklúbba á íslandi, ljósmyndarafélög, viðtöl við ljósmyndara, jafnt atvinnumenn sem og áhugamenn ásamt viðtölum við ýmsa er tengjast ljósmyndun á einn eða annan hátt. Fylgst verður með því nýjasta í ljósmyndun og verður reynt að gera því góð skil. 

Í desember 2001 fór af stað ljósmyndakeppni og bárust 110 myndir í keppnina. Fjölmargir netverjar tóku þátt í að greiða myndunum atkvæði og var þetta spennandi keppni. Úrslitin voru kunngjörð í byrjun janúar 2002.Í janúar 2002 fór síðan af stað önnur ljósmyndakeppni. Í þá keppni bárust 233 myndir. Yfir 300 manns tóku þátt í kosningunni. Úrslitin voru kynnt 2. mars 2002.vefsíðan ljosmyndari.is hefur fengið frábærar móttökur en hún var tekin í notkun þann 4. ágúst 2001. Einnig var sett upp spjallkerfi en það var tekið út nokkrum mánuðum síðar vegna tækniörðuleika.

Árið 2009 var hafist handa við að hanna nýja vefsíðu,  enda komin "til ára sinna"  og kom breytingin í ljós sumarið 2010. Smíði hennar hefur tekið dágóðan tíma, en eins og máltæki segir "góðir hlutir gerast hægt" höfum við haft það að leiðarljósi að vanda vel til verka. Útlit síðunnar hefur verið fært til nútímans og eins virkni hennar. Vefsíðan er núna gagnvirk, sem þýðir það að notendur geta m.a. sett inn myndir og ókeypis smáauglýsingar, sem áður fyrr var allt gert "handvirkt" með gömlu góðu aðferðinni "copy" / "paste"  Sett var upp atburðardagatal, þar sem hægt er að sjá upplýsingar um ýmsa atburði og uppákomur sem gæti verið áhugavert að ljósmynda. Einnig er bent á ljósmyndasýningar sem standa yfir. Birt eru viðtöl við aðila er tengjast ljósmyndun á einn eða annan hátt. Fréttir, greinar og fleira verða í þessum lið undir "Greinasafn"

Vefurinn verður í stöðugri endurskoðun og viðbætur mun sjá dagsins ljós á komandi mánuðum. 

Allar ábendingar um útlit og efnistök eru vel þegnar svo og álit ykkar á þessum vef.

Netfangið er: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Ritstjóri og ábyrgðarmaður www.ljosmyndari.is er Pálmi Guðmundsson ljósmyndari.

ljosmyndari.is - upplýsingar Gera að upphafssíðu Hafa samband Um vefinn Dagatal Senda á vin Finndu okkur á Facebook Skráning á póstlista Bókamerkja Gera að upphafssíðu

Allt efni er höfundarréttarvarið ~ Ábyrgðarmaður: Pálmi Guðmundsson ~ Netfang: ljosmyndari@ljosmyndari.is