FJÁRSJÓÐUR - á Minjasafninu
Laugardagur, 19. Júní '10 19:26
Á Minjasafninu á Akureyri stendur yfir ljósmyndasýningin „FJÁRSJÓÐUR – tuttugu ljósmyndarar frá Eyjafirði 1858-1965“ Sýningin er afrakstur rannsókna Harðar Geirssonar, safnvarðar Minjasafnsins, á ljósmyndaarfi Íslendinga. Uppgötvunum hans á ferðalaginu um leyndardóma ljósmyndanna má líkja við litla eðalsteina sem saman mynda FJÁRSJÓÐ.
Myndir eftir nánast óþekktan ljósmyndara að nafni Árni Stefánsson frá Litla-dal koma nú fyrir sjónir almennings í fyrsta skipti ásamt merkum frummyndum Tryggva Gunnarssonar sem teknar voru 1865 á Akureyri auk fyrstu myndanna sem teknar voru á Húsavík 1866. Afkastamestur ljósmyndaranna hvað varðar kynningu á sér og sínum verkum var Vigfús Sigurgeirsson. Hann hélt sýningu í Hamborg 1935, í höfuðborgum Norðurlandanna 1937 og í New York 1939. Hann gaf meðal annars út fyrstu ljósmyndabókina á Íslandi árið 1930. Frummyndir hans af sýningunum utanlands má nú sjá á Minjasafninu.Fimmtungur ljósmyndaranna tuttugu sem fjallað er um á sýningunni eru konur. Sú þekktasta er Anna Schiöth annar kvenljósmyndari landsins. Hún rak ljósmyndastofu á Akureyri samfellt í 20 ár. Auk hennar voru þær Engel Jensen, Anna Magnúsdóttir og Guðrún Funk Rasmussen að störfum á þessu tímabili hér í bæ.
Hér er í fyrsta skipti komið saman yfirlit yfir ljósmyndun á Eyjafjarðarsvæðinu. Sýningin samanstendur af ljósmyndum úr ljósmyndasafni Minjasafnsins á Akureyri, sem er þriðja stærsta á landinu sinnar tegundar, auk ljósmynda fengnum að láni frá Þjóðminjasafni Íslands. Minjasafnið á Akureyri er opið alla daga frá 1. júní - 15. sept. kl. 10 - 17
| < Fyrri |
|---|