Einar Falur í fótspor Collingwood

Ásýningunni Sögustaðir – í fótspor W.G. Collingwoods má sjá ljósmyndaverk eftir Einar Fal Ingólfsson, sem unnin eru með hliðsjón af vatnslitamyndum, teikningum og ljósmyndum sem breski myndlistarmaðurinn og fornfræðingurinn William Gershom Collingwood málaði og tók af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum á tíu vikna ferðalagi um Ísland sumarið 1897. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík 2010.

W.G. Collingwood kom til landsins til að mála myndir af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum og um leið skapaði hann merkar heimildir um íslenskan samtíma sinn. Í ljósmyndum Einars Fals verður til samtal þriggja tíma; samtíma áhorfandans í dag, samtíma Collingwoods árið 1897 og sögualdarinnar, sem Bretinn hyllti í myndverkum sínum.

Á sýningunni í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands má sjá úrval ljósmynda Einars Fals og að auki hluta þeirra rúmlega 300 verka sem Collingwood málaði hér á landi, en ríflega helmingur myndanna frá ferð hans eru varðveittar í Þjóðminjasafninu.

Þjóðminjasafnið er opið sem hér segir:
Sumar (1. maí - 15. september) Alla daga vikunnar kl. 10-17.
Vetur (16. september - 30. apríl) Alla daga vikunnar nema mánudaga klukkan 11-17.

Aðgangseyrir er 1.000 kr. Frítt á miðvikudögum.

Sýningunni lýkur 30. des.

Vefsíða:   http://www.natmus.is/

ljosmyndari.is - upplýsingar Gera að upphafssíðu Hafa samband Um vefinn Dagatal Senda á vin Finndu okkur á Facebook Skráning á póstlista Bókamerkja Gera að upphafssíðu

Allt efni er höfundarréttarvarið ~ Ábyrgðarmaður: Pálmi Guðmundsson ~ Netfang: ljosmyndari@ljosmyndari.is